FRUMSÝNDUR 14. MARS
Þessi nútímalegi fimm sæta bíll sameinar einstök þægindi, háþróaða tækni og snjallar lausnir sem gera hverja ferð að ánægjulegri upplifun. Með stílhreinni hönnun og rúmgóðu innanrými er JAC E30X fullkominn valkostur fyrir borgarakstur og lengri ferðir – og vekur án efa athygli á veginum.

Drægni (WLTP)
Afköst rafhlöðu
Ríkulegur
JAC E30X er snjall og lipur fimm sæta bíll með nýstárlega hönnun sem sækir innblástur í retro-stíl og sker sig úr á veginum. Einkennandi framhliðin er einföld og stílhrein, með fallegum, hringlóttum LED-ljósum sem gefa bílnum fágaðan blæ. Sléttar, straumlínulaga hliðar leggja áherslu á nútímalegan svip hans.
Panorama
Sólþak
LED
Aðalljós
Hönnun
Sportleg og retro
JAC E30X er búinn innfelldum handföngum sem skapa hnökralausa og nútímalega hönnun. Bíllinn aflæsist sjálfkrafa og handföngin koma út þegar þú nálgast – og læsast aftur þegar þú fjarlægist. Felgurnar undirstrika fágaða hönnun bílsins og gefa honum sportlegt og kraftmikið yfirbragð.

JAC E30X er með 51,5 kWt rafhlöðustærð. Hann getur hlaðið allt að 7,2 kW við heimahleðslu og hraðhlaðið úr 30–80% á um 45 mínútum. CCS hleðslutengi er staðalbúnaður.

Með hringlóttum framljósum sem samanstanda af yfir 100 LED-ljósum er JAC E30X með einstaka blöndu af retro stíl og framtíðarhönnun.

Hringlaga hliðarspeglarnir eru með upphitun og rafdrifinni fellingu sem leggst sjálfkrafa inn þegar bílnum er læst.
Að innan er JAC E30X bæði rúmgóður og nútímalegur, hannaður til að bjóða upp á þægilega og skemmtilega akstursupplifun. Þrátt fyrir litla stærð, heillar E30X með góðu fótarými og höfuðrými fyrir alla farþega, bæði að framan og aftan. Bíllinn er einnig búinn snjöllum lausnum og nútímalegum tengimöguleikum sem gera auðvelt að tengja stafrænu tækin þín.
Þráðlaust
Apple CarPlay
Þráðlaust
Android Auto
Snertiskjár
15,6"

JAC E30X býður upp á tvo glæsilega innréttingarliti – hvítan með grábrúnum tónum og klassískan svartan með ljósum tónum. Veldu það útlit sem hentar þér best.
Með háþróaðri tækni og afþreyingarkerfi getur þú notið hnökralausrar tengingar og afþreyingar á ferðinni.

15,6" upplýsingaskjárinn í JAC E30X sameinar allt sem þú þarft á einum stað. Háskerpu snertiskjárinn býður upp á auðvelda stjórn á leiðsögn, tónlist og snjallri tengingu í gegnum Apple CarPlay og Android Auto – fyrir þægilegri og skemmtilegri akstursupplifun.

Þægilegu sætin í E30X eru hönnuð til að veita hámarksstuðning, með stillingarmöguleikum sem aðlagast þínum þörfum.

JAC E30X er búinn rúmgóðu 310 lítra farangursrými sem býður upp á nægt pláss fyrir innkaup, farangur eða búnað fyrir helgarferðir. Aftursætin eru með 60:40 skiptingu sem eykur sveigjanleika og gerir þér kleift að stilla farangursrýmið eftir þörfum.
Velkomið að hlaða niður skjalinu um bílinn sem þú ert að skoða JAC E30X. Ef þú finnur ekki það sem þú ert að leita að, vinsmlegast hafðu þá samband við næsta söluaðila.
JAC E30X er með 8 ára/160.000 km ábyrgð á rafhlöðu. Ábyrgð á bílnum er 6 ár/150.000 km. Allir bílarnir eru ryðvarðir hjá Mercasol í Noregi/Bílaryðvörn ehf., meðhöndlunin ver bílinn gegn ryðmyndun og lengir endingartíma hans. Ryðvörnin er innifalin í verðinu.